Eurovision

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Nýjir spádómar

Esctoday sýndi í gær nýja niðurstöður spádóma! Við Íslendingar höfum færst ofar í undankeppninni:) En við höfum dottið útaf topp 10 listanum!

Þau lönd sem komast áfram uppúr undanúrslitunum samkvæmt nýjustu spá:
1. Belgium
2. Sweden
3. Bosnia & Herzegovina
4. Russia
5. Estonia
6. Finland
7. Poland
8. Iceland
9. Armenia
10. FYR Macedonia

Hér eru þau lönd svo sem eru í topp 10 af öllum:
1. Belgium
2. Bosnia & Herzegovina
3. Sweden
4. Russia
5. FYR Macedonia
6. Estonia
7. Finland
8. Armenia
9. Slovenia
10. Turkey

laugardagur, apríl 22, 2006

Eurovision kynningar þættirnir

Nú er um að gera að taka frá tíma kl 19:41 á laugardögum, fjóra laugardaga í röð:)

Þættirnir ,,Söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva 2006" byrja í kvöld, en þættirnir hafa verið sýndir í nokkur ár (2 ár að mig minnir). Í þættinum koma saman Eurovision spekingar Norðurlandanna. Fulltrúi Íslands er Eiríkur Hauksson sem hefur tvisvar sungið í keppninni. Lögin í keppnunum verða kynnt, bæði í undan og aðalkeppninni, spekingarnir spá svolögunum gengi þeirra í kepninni.

Undanfarin ár hafa þetta verið góðir og skemmtilegir þættir, svo ég hvet ykkur til að setjast í sófan og horfa á þennan snildar þátt:)

Og svo ef þið missið af honum þá er hann endursýndur 3 sinnum;) Seinnipartinn á Sunnudögum, kl.16 á miðvikudögum og seinnt á fimmtudagskvöldum:) Þannig þið ættuð varla að missa af þessum snildar þætti;)

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Norðurlöndin hætta þátttöku í Eurovisionkeppni barna

Ríkissjónvörpin í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa ákveðið að hætta þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir börn og segja að keppnin sé komin út í öfgar og sé farin að líkast hefðbundnum skemmtiþáttum þar sjáist of margir berir magar og stutt pils en sé ekki lengur barnaskemmtun.

Samband evrópskra sjónvarpsstöðva hefur haldið þessa keppni frá árinu 2003 en þar keppa börn á aldrinum 8-15 ára með Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fyrirmynd.

,,Við viljum ekki að börn hagi sér eins og þau séu fullorðnar idol-stjörnur," sagði Lars Grarup hjá danska ríkissjónvarpinu, DR. ?Við viljum ekki sjá fullt af berum mögum, stutt pils, fullt af skarti og andlitsfarða."

Sænska ríkisútvarpið, SVT, og norska ríkisútvarpið, NRK, hafa einnig kvartað yfir því að keppendur séu of margir og sumir þeirra fái engin stig og það sé erfitt fyrir börn að taka slíku. Þá eigi börnin sjálf að semja lögin, sem flutt eru í keppninni.

,,Við viljum að þetta verði barnaskemmtun þar sem hagsmunum barna verði gert hærra undir höfði en skemmtigildinu," sagði Maria Groop Russel, talsmaður SVT.

Keppnin á að fara fram 2. desember í Búkarest í Rúmeníu og hafa 12 þjóðir boðað þátttöku. Norðurlöndin segjast ætla að skipuleggja eigin barnaskemmtun í Stokkhólmi í nóvember og bjóða Íslendingum og Finnum að taka þátt.

Tekið beint af http://www.mbl.is/

Þetta finnst mér mjög svo sniðugt, ég er algjörlega hlinnt því að þau gefi skít í Barna Eurovision keppnina. Frábært að það verði þá bara í staðin Norræn barnaskemmtun mjög svo sniðgut;) Enþá betra er að við eigum þá kost á að taka þátt í henni:)

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Fyrsta Eurovision spáin

Jæja nú eru fyrstu tölurnar úr Eurovision spánni komnar.. og getiði nálagst þær hér: ESC today
En samkvæmt þessum fyrstu tölum erum við Íslendingar í 11.sæti, og erum þá að berjast við "Frændur" vora Finna um það að komastí úrslitin, en samkvæmt þessum niðurstöðum eru Finnar í 10 sæti rétt á undan okkur! Tek fram að það munar einungis 0,04 stigum á okkur og Finnum!

Þetta eru þau lönd samkvæmt fyrstu spá sem komast í úrslitin:
1. Belgium
2. Sweden
3. Bosnia-Herzegovina
4. Russia
5. Poland
6. Turkey
7. Estonia
8. Armenia
9. FYR Macedonia
10. Finland

Þetta á nú eflaust eftir að breytast eitthvað;)
Höfum það samt í huga að þetta er sama spá og spáði Selmu fyrra efstusætunm beint í úrslit:)

Ég er reyndar nú kannski ekki alveg nógu sátt við þetta til að byrja með! Svíþjóð, Finnland, Belgía og Eistland eiga skilið að vera þarna... en öðru má alveg breyta finnst mér:) Reynar ekki búin að gera mér það upp hverjir ættu þá að koma í staðinn, en það yrði eflaust Ísland okkar;)

laugardagur, apríl 01, 2006

Horfa, hlusta, skoða

Ýtið á eftirfarandi texta hér fyrir neðan til að fá upp það sem felst í textunum!

Nú eru öll löndin komin með myndbönd og hægt að horfa á myndböndin og hlusta á lögin þeirra hérna.!

Það er einnig komið Eurovision útvarp! Þar er hægt að heyra gömul jafnt sem ný lög, frá öllum löndum! Þegar ég hlustaði um daginn þá kom tvisvar lag frá Íslandi, bæði lagið úr Undan keppninni hérna hjá okkur 2006 með Regínu Ósk og svo var það, Þá veistu svarið, síðan 1993! Þetta er snildar útvarpstöð!

Getið horft á öll íslensku Eurovision lögin, bæði á sviðinu og myndböndin við þau!

Ef þið viljið heyra vinningslöginn síðan 1956 þá mæli ég með þið skoðið þetta!

Þátturinn Silvía nótt kom fram á MTW í Japan

Einnig vil ég benda á það að Ísland er búið að gera Eurovision síðuna sína upp!